Glerártorg
Til leigu eru tvö verslunarrými í þessari glæsilegu verslunarmiðstöð sem jafnframt er sú stærsta utan höfuðborgarsvæðisins. Í verslunarmiðstöðinni eru tæplega fjörutíu verslanir auk veitingastaða, læknastofu, tannlæknastofu og blóðbanka. Um er að ræða verslunarrými nr. 03 á grunnmynd þar sem áður var rekinn pizzastaður. Umrætt verslunarrými er í kringum 135 fm og þar af eru 26 fm á millipalli. Á vormánuðum mun losna tæplega 40 fm verslunarrými og er það merkt nr. 5 á grunnmynd. Mjög gott aðgengi er að verslunarmiðstöðinni og hún nærri stofnbrautum. Nóg af bílastæðum.
Sjá á korti
Rými í boði
verslunarrými
Gerð:
Verslunarhúsnæði
Stærð:
135 m2
Gerð:
Verslunarhúsnæði
Stærð:
37 m2